Frábær tíðindi.

Vonandi gengur nú allt upp.

Það er löngu tímabært að menn geri sér grein fyrir að fólk lifir ekki á loftinu einu saman, þó það virðist líta vel út í augum sumra.

Þeir mega lifa á loftinu einu saman mín vegna.

Ég ætla hins vegar ekki að gera það og fagna því öllum jákvæðum fréttum af þessu verkefni ekki síður en öðrum atvinnutækifærum.


mbl.is Aukin bjartsýni vegna álvers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað er þetta bara sjónarspil

Jóhanna Sigurðar þorði ekki heim að lokinni stefnuræðu sinni öðruvísi en taka þar fram "allskonar" sem hún vill sjá gerast. "Allskonar" sem hennar ríkisstjórn hefur þó barist gegn með harðri hendi, eins og t.d. aukið samstarf flokkanna, atvinnumál á Suðurnesjum, virkjanaframkvæmdir o.fl.

Eða er það kannski Steingrímur sem öllu hefur ráðið á bak við tjöldin? Hann er jú þekktur baráttumaður gegn atvinnuuppbyggingu eins og allir hans þingmenn. Steingrímur er barasta eitt, og ekkert annað: Andsk...... afturhalds- kommatittur sem heldur alltaf að hann þurfi að hafa vit fyrir almúganum. Það væri allt í lagi ef hann hefði vit á því sem hann er að gera. Það eina sem hann hefur er "fagurgali", þ.e. hann á auðvelt með að blekkja fólk með ræðusnilld sinni.


mbl.is Lokatilraun á mánudaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfgamanneskja sem ætti að draga fyrir Landsdóm.

Svandís Svavarsdóttir er að mínu mati öfgamanneskja sem ætti að draga fyrir Landsdóm fyrir ítrekaðar árásir á íslenskt hagkerfi.

Við þurfum ekki á svona fólki að halda. Burt með hana og það strax.


mbl.is Svandís áfrýjar dómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

9,5 ferkílómetrar?

Einhvernveginn hélt ég alltaf að Kína væri mun stærra en það :o)

Hér á auðvitað að standa 9,5 milljón ferkílómetra. Þarna er smá munur á.

Til samanburðar er Ísland um 103 þúsund ferkílómetrar.


mbl.is Mesta skógrækt sögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hverju reiddust þá goðin........

....... þá er hér brann hraunið, er nú stöndum vér á?" mælti Snorri goði Þorgrímsson forðum.

Það var mælt árið 1.000, eða fyrir rúmum þúsund árum þegar til stóð að taka upp kristni á Íslandi. Þetta sýnir okkur hve langt á eftir okkur slíkir spekingar sem Gaddafi eru.

Mér datt þetta bara svona í hug :o)


mbl.is Öskuskýið var heilög refsing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel mælt

Forsetinn okkar er jú mannlegur, eins og við hin, en mér finnst hann koma mjög vel út úr viðtölum sínum við fjölmiðla, bæði innlenda sem erlenda. Hann er að mínu mati vel mæltur og skynsamur.

Auðvitað fara allir einhverntíma yfir á grátt svæði í öllum sínum athöfnum. Það er jú bara mannlegt.

En það sem uppúr stendur er að hann kemur heiðarlega fram í viðtölunum. Segir sannleikan (a.m.k. þann sannleika sem vísindamenn eru sammála um varðandi Kötlu) hvort sem hann er þægilegur eða ekki. Það hét einhverntíma að vera heiðarlegur og mættu fleiri taka sér til fyrirmyndar.

Ég stend með forsetanum í orrahríðinni.


mbl.is Vona að við sjáum betri tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú tæki ég hattinn ofan.......

.... fyrir Ólafi, ef ég væri með hatt.

Hann virðist vera það afl sem við þurfum í þessu máli. Það er tekið eftir því sem hann segir opinberlega um hug sinn til málsins, en aðrir sem eru sömu skoðunar eru því miður ekki áberandi í alþjóðlegri umræðu.


mbl.is „Það er verið að kúga okkur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En það er líka ekkert skrýtið.....

.... að þetta mál komi upp.

Steingrímur er jú þekktur fyrir að segja eitt, en meina svo eitthvað allt annað þegar á hólminn er komið.

Það var nú einfaldlega þannig sem hann komst til valda.


mbl.is Blaðamaður SvD stendur við fréttina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópska regluverkabáknið.......

.... er auðvitað stærsti sökudólgur í málinu. Eðlilegast væri að ESB borgaði brúsann þar sem skaðinn er fyrst og femst af völdum gallaðs regluverks þess.

Það er að minnsta kosti deginum ljósara að ég, mín börn og barnabörn og aðrir fjölskyldumeðlimir, auk alls annars almennings í landinu, kom þar hvergi nærri og því engin hemja að við borgum tjónið, auk svo allra framtíðarafkomenda okkar um óljósa framtíð.

Málið er ekki flóknara í mínum huga.


mbl.is Segir Wade hafa rangt fyrir sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Páll Rúnar Pálsson

Höfundur

Páll Rúnar Pálsson
Páll Rúnar Pálsson
Bara svona meðalmaður.
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 18632

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband