Nú verður að bretta upp ermar!

Það er alltaf jafn sárt að horfa á eftir fornminjum fara svona í súginn. Það var alltaf jafn notalegt að sjá þessa litlu timburkirkju kúra við vegkantinn þegar maður átti leið hjá.

En þessu tjóni verður víst ekki afstýrt héðan af. Nú þarf sannarlega að bretta upp ermar og hefja þegar í stað endurbyggingu hennar. Nóg er örugglega af góðum fagmönnum til verksins.


mbl.is Krýsuvíkurkirkja brann í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sorglegt! Vonandi verður byggð ný kirkja í staðinn. Veit ekki hvað gerðist en ef þetta var skemmdarverk eins og þegar rúður voru brotnar í annarri kirkju nýlega, þá vil ég minna á að íslendingar getum gert svo miklu meira uppbyggilegt með þau verðmæti sem annars fara í viðgerðir og endurnýjun á skemmdum hlutum. Peningum sem eyða þarf bara til að bæta fyrir heimsku og geðveikisleg verk þorpsfíflanna væri t.d. betur varið í uppbyggingu á Grensás.

Merkúr (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 11:33

2 identicon

Kirkjan verður endurbyggð.

Sigurjón Pétursson formaður sóknarnefndar Hafnarfjarðarkirkju

http://picasaweb.google.com/sigurjonp/Krisuvikurkirkja112010#

Sigurjón Pétursson (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 11:46

3 identicon

.................................

Sú kynlega vissa hjá klerki fenginað kúgildin séu til þurrðar gengin.Kirkja fyrirfinnst engin

D.S.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 12:55

4 identicon

Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá fyrirsögnina var fréttin um rúðubrotin í Grensáskirkju í gær.  Skyldi vera eitthvað samhengi þarna á milli?  Eiga skattborgarar eftir að þurfa að borga enn meira til kirkjunnar á næstu árum vegna viðhalds, endurbygginga og öryggisgæslu?

Ég vissi ekki að það væri til kirkja í Krísuvík og ég er ekki mjög kirkjurækin kona en samt finnst mér einhvernveginn skemmdarverk á kirkjum ein þau ljótustu sem ég heyri um.  Það getur ekki verið mikið gott í fólki sem ferðast um og eyðileggur kirkjur.

Hulda (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Páll Rúnar Pálsson

Höfundur

Páll Rúnar Pálsson
Páll Rúnar Pálsson
Bara svona meðalmaður.
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 18688

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband